top of page

Hvernig stuðlum við að hæglæti?

Tilgangur okkar og markmið er að tala fyrir og fjalla um hæglæti sem er raunverulega forvörn gegn hraða, streitu, áreiti og örmögnun.  Hæglæti er líf í meðvitund.

 

HÆGLÆTISHLAÐVARP

Í hverjum mánuði setjum við í loftið nýjan hæglætisþátt. Hver þáttur er tileinkaður sérstöku umræðuefni sem gefur hlustanda góða innsýn inn í efnið á stuttum tíma. Fyrsti þátturinn fjallar almennt um hvað hæglæti er, en síðar förum við til dæmis ítarlega í það hvernig hæglæti birtist og nýtist okkur í samskiptum, samböndum, uppeldi, á heimilinu, í starfi, á ferðalögum, í mat, drykk, áhugamálum og öðru. 

HÆGLÆTISBLOGG

Við birtum reglulega fróðlega pistla sem tengjast umræðuefni mánaðarins og því sem stendur okkur nærri hverja stund. Pistlarnir munu birtast á heimasíðunni okkar og á samfélagsmiðlunum okkar: HÆGLÆTI á Facebook og Instagram.

HÆGLÆTISHREYFINGIN

Við hvetjum alla áhugasama um að taka þátt í hæglætinu með því að ganga til liðs við hópinn okkar HÆGLÆTISHREYFINGIN á facebook. Þar er öllum velkomið að varpa fram spurningum, deila reynslu sinni, áhugaverðu efni og öðru.

bottom of page