top of page
Saga Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi
Hæglætislíf er nokkuð sem fylgt hefur mannkyninu frá örófi alda en ekki verið ástundað af stórum hópum fólks nú um langa hríð. Sá mikli hraði, kröfur og áreiti sem einkennir stóran hluta heimsins núna hefur verið að aukast síðustu 100 ár. Hæglætishugmyndir og hugmyndafræði á rætur sínar að rekja allt aftur til forngrikkja og þangað leitar Hæglætishreyfingin að innblæstri meðal annars. Við leyfum okkur því að horfa til fortíðar í leit að innihaldsríkari framtíð en mest viljum við dvelja í nútíðinni og njóta hennar sem best. Hæglætishreyfingin á Íslandi var stofnuð í janúar árið 2021. Þær sem stóðu að stofnun hennar voru: Sólveig María Svavarsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Ágústa Margrét Arnardóttir, Guðrún Helga Jóhannsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Sabína Steinunn Halldórsdóttir, Guðný Valborg Guðmundsdóttir, Nína Jónsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Pálína Ósk Hraundal. Stofnendur Hæglætishreyfingarinnar voru með ólíkan bakgrunn, þekkingu og reynslu en það sem sameinaði þær var áhuginn og ástríðan fyrir betra lífi og bættum lífsskilyrðum. Þær hafa allar á einhvern hátt helgað líf sitt því að þróast í átt að hæglætislífi og auknum lífsgæðum. Sumar höfðu ástundað hæglæti lengi, aðrar skemur. Sumar meðvitað, aðrar ómeðvitað. Það sem tengdi þær saman var að þær héldu allar úti Instagram reikningum sem höfðu hæglæti að umfjöllunarefni í einni eða annarri mynd. Þær fundu samhljóm og ákváðu að tengjast. Og þannig gerðist það að Hæglætishreyfingin varð til.
bottom of page